Ég hef því miður ákveðið að hætta miðlun vod leigu á streymisumhverfi Filmflex.

Ástæðan er einfaldlega sú að samkvæmt leyfisveitingu Fjölmiðlanefndar eru rekstraraðilar skyldugir lögum samkvæmt að texta eða talsetja allt sitt efni á íslensku, án þess að tilkomi stuðningur á móti. Filmflex hefur boðið um 600 kvikmyndir með íslenskum texta sem á kostnaðarverði leggst út fyrir að vera um 30 milljónir króna, allt unnið í sjálfboðavinnu, auk talsetts barnaefnis á Íslensku.

Mikið hefur verið fjallað um s.k. fjölmiðlastyrki en því miður ná þeir ekki til íslenskra streymisveitna, heldur er þeim ætlað að styðja við fréttatengda miðla einungis.

Það er því ójafn leikur að þurfa að stunda sín viðskipti í lagaumhverfi sem kemur svo ekki til móts við rekstraraðila með neinum hætti og því óraunhæft að stunda samkeppni við erlendar risa streymisveitur sem þurfa ekki að fara eftir þessum lögum og geta því boðið landsmönnum kvikmyndir og sjónvarpsþætti á ensku eða öðrum tungumálum.

Því er rekstrar­um­hverfi einka­rekinna afþreyingarmiðla á Ís­landi ó­boð­legt.

Sem forráðamaður Filmflex hef ég með greinarskrifum í Morgunblaðið, nú síðast 20 mars s.l. ítrekað kallað eftir að markaðurinn sé lagaður að íslenskum streymisveitum, en því miður talað fyrir daufum eyrum ráðamanna þjóðarinnar sem þó berja sér á brjóst og lofa landsmönnum því að íslenskan muni ávallt vera höfð að leiðarljósi í samkeppni við erlend áhrif, en því miður eru þessar efndir orðin tóm, allavega fyrir þessa streymisveitu sem hefur barist frá því að hún fór fyrst í loftið um mitt ár 2021 og hefur staðið vaktina síðan, án styrkja.

Kostnaður við textun, kóðun, uppsetningu efnis á server er töluvert mun hærri en leigutekjur og því er mínus um hver mánaðarmót sem er ekki lengur hægt að réttlæta. Því er það staðan að hætta með vod leigu Filmflex á næstu dögum, sem er mikið miður vegna þess að Filmflex sérhæfði sig í “eldri” kvikmyndaperlum sem nú hverfa af markaði og því nokkuð ljóst að yngri kynslóðir fara á mis við þessar kvikmyndaperlur.

Við þökkum þeim sem kíktu við og tóku myndir á leigu hjá okkur og styrktu íslenska streymisveitu fyrir Íslendinga.


Hólmgeir Baldursson
stofnandi Filmflex